- Auglýsing -
Handknattleikskonan efnilega, Sara Rún Gísladóttir, hefur skrifað undir nýjan samning við Fram. Nýi samningurinn gildir til ársins 2029 segir í tilkynningu frá félaginu.
Sara Rún hefur farið mikinn á tímabilinu með Fram í Grill-deildinni og er ein af markahæstu leikmönnum deildarinnar og skoraði 123 mörk í 14 leikjum. Einnig hefur Sara Rún tekið þátt í 14 leikjum í Olísdeild kvenna með Fram.
„Sara Rún, systur hennar tvær, Brynja og Íris, sem og foreldrar hennar, Gísli og Lilja, eru mjög áberandi hér í starfinu í félaginu og erum við hæstánægð með að halda okkar fólki hjá okkur og sjá það vaxa og dafna,“ segir enn fremur í tilkynningu Fram.
- Auglýsing -




