- Auglýsing -
Elverum vann öruggan sigur á spænska liðinu Granollers, 37:28, í fyrstu umferð 2. riðils 16-liða úrslita Evrópudeildar karla í kvöld. Tryggvi Þórisson var að vanda með Elverum og skoraði eitt mark en var fyrst og síðast fastur fyrir í vörninni gegn spænsku sóknarmönnunum.
Með sigrinum færðist Elverum upp í efsta sæti riðilsins með fjögur stig en Elverum tók með sér úrslit í leikjum við Porto úr 32-liða úrslitum sem leikin voru frá því í október og fram í byrjun desember.
Porto og Skanderborg eiga einnig sæti í riðlinum og var viðureign liðanna að hefjast rétt í þessu.
- Auglýsing -



