- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Tumi Steinn og Tryggvi Garðar komust örugglega í átta liða úrslit

- Auglýsing -

Tumi Steinn Rúnarsson og Tryggvi Garðar Jónsson skoruðu tvö mörk hvor þegar Alpla Hard tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar í Austurríki í gærkvöld. Þriðji Íslendingurinn, Hannes Jón Jónsson, er þjálfari Alpla Hard.


Alpla Hard lagði smáliðið Perchtoldsdorf, 36:23, á útivelli eftir að hafa verið níu mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 21:12.

Átta liða úrslit bikarkeppninnar verða leikin 3. apríl, föstudaginn langa. Ekki liggur fyrir hvaða liði Alpla Hard mætir enda er 16-liða úrslitum ekki lokið. Þrjár síðustu viðureignir 16-liða úrslita fara fram í kvöld.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -