- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Leikmaður HBH í þriggja leikja bann

- Auglýsing -

Nökkvi Guðmundsson leikmaður HBH, sem leikur í Grill 66-deild karla í handknattleik, var í dag úrskurðaður í þriggja leikja bann á aukafundi aganefndar HSÍ. Nökkvi hlaut útilokun með skýrslu vegna sérstaklega hættulegrar aðgerðar í leik Hvíta Riddarans og HBH í Grill 66 deild karla 13. febrúar.


Mál Nökkva var tekið fyrir á fundi aganefndar í gær, þriðjudag, en úrskurði frestað um sólarhring svo HBH gæti komið Nökkva til varnar vegna þess að mat aganefndar var á þann veg að brot hans gæti verðskuldað lengra bann en sem nemur einum leik.

Þegar aganefnd fór yfir málið á ný í dag var það mat hennar að framkomin gæfu ekki tilefni til að hverfa frá mati dómara leiksins á leikbrotinu eins og því er lýst í skýrslu dómara.

Bannið tekur gildi á hádegi á morgun, fimmtudaginn 19. febrúar.


Aganefnd HSÍ | Úrskurður 18.02.’26

Aganefnd HSÍ | Úrskurður 17.02.’26

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -