Viktor Gísli Hallgrímsson og liðsfélagar í Barcelona eru öruggir um sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik eftir afar öruggan sigur á ungverska liðinu Pick Szeged, 35:27, í Pick Arena í Szeged í kvöld í 11. umferð 14 í riðlakeppninni. Barcelona á víst annað af tveimur efstu sætum B-riðils sem veitir sæti í átta liða úrslitum. Liðið mun þar með hlaupa yfir fyrstu umferð útsláttarkeppninnar sem tekur við að lokinni riðlakeppninni.
Spreytti sig á einu vítakasti
Viktor Gísli kom lítið við sögu í leiknum í Pick Arena. Hann freistaði þess að verja eitt vítakast en sat að öðru leyti á bekknum. Emil Nielsen varði mark Barcelona vel, ekki síst í fyrri hálfleik. Staðan eftir 30 mínútur var 20:10 fyrir Barcelona.
Janus Daði var ekki með
Annan leikinn í röð var Janus Daði Smárason ekki í leikmannahópi Pick Szeged sem er í fjórða sæti riðilsins með 10 stig eftir 11 leiki, helmingi færri stig en Barcelona.
Aleix Gómez var markahæstur hjá Barcelona með níu mörk. Domen Makuc var næstur með sjö mörk og landi hans Blaz Janc skoraði fjögur mörk.
Imanol Garciandia skoraði fimm mörk fyrir Pick Szeged og Lazar Kukic fjögur.
Kolstad steinlá – Svavar og Sigurður dæmdu
Í A-riðli heldur Aalborg Håndbold efsta sætinu. Liðið gjörsigraði lánlaust lið Kolstad frá Noregi, 36:24. Aðeins var þriggja marka munur þegar fyrri hálfleikur var að baki, 17:14. Leikmenn Kolstad sáu ekki til sólar í síðari hálfleik. Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson dæmdu leikinn sem sá fyrsti sem þeir dæma saman í keppninni.
Sigvaldi Björn Guðjónsson var næstmarkahæstur hjá Kolstad með sex mörk. Svíinn Simon Jeppsson var markahæstur með 11.
Benedikt var ekki með
Benedikt Gunnar Óskarsson var ekki í leikmannahópi Kolstad. Sigurjón Guðmundsson markvörður sat á varamannabekknum frá upphafi til enda leiksins.
Thomas Arnoldsen var atkvæðamestur leikmanna Aalborg með átta mörk. Mads Hoxer skoraði sjö mörk og Sander Sagosen, fyrrverandi leikmaður Kolstad, skoraði fimm mörk eins og annar Norðmaður, Kristian Bjørnsen.
Franska meistaraliðið PSG, sem leikur í B-riðli m.a. með Barcelona og Pick Szeged, vann HC Zagreb, 35:24, í Zagreb og komst þar með upp í 5. sæti.


