- Auglýsing -
Hinrik Hugi Heiðarsson hefur framlengt samning sinn við ÍBV til loka keppnistímabilsins 2027/28.
Hinrik Hugi er öflugur línumaður sem leikið hefur með ÍBV og HBH auk þess sem hann var lánaður um skeið til Hauka á síðasta keppnistímabili. Hinrik Hugi var í 20 ára landsliðinu sem tók þátt í Evrópumótinu sumarið 2024 í Slóveníu.
- Auglýsing -


