- Auglýsing -
Guðjón Valur Sigurðsson og hans menn í Gummersbach fögnuðu öruggum sigri á heimavelli í kvöld, 35:27, á Eisenach í 21. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik. Gummersbach var með yfirhöndina í leiknum frá upphafi til enda. Í hálfleik var forskotið fjögur mörk, 17:13.
Þrátt fyrir sigurinn þá er Gummersbach enn í sjötta sæti, þremur stigum á eftir THW Kiel sem situr í 5. sæti.
Miro Schluroff fór á kostum í liði Gummersbach og skoraði 12 mörk. Elliði Snær Viðarsson skoraði tvö mörk en Teitur Örn Einarsson ekkert. Teitur átti eina stoðsendingu og vann boltann einu sinni í vörninni. Dominik Kuzmanović varði 14 skot, 37%.
Felix Aellen var markahæstur hjá Eisenach með sjö mörk.
Staðan:
Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -



