HK komst á ný í efsta sæti Grill 66-deildar kvenna í kvöld. HK lagði Víking, 28:23, í Virkinu í Safamýri í upphafsleik 18. umferðar. HK er tveimur stigum á undan Gróttu sem mætir Val 2 á morgun í N1-höllinni. Gróttuliðið þarf á sigri að halda til þess að endurheimta efsta sæti deildarinnar. Grótta stendur betur að vígi í keppni við HK vegna hægstæðra úrslita í innbyrðis viðureignum.
FH vann stórsigur á Aftureldingu, 34:23, í hinum leik kvöldsins í Grill 66-deild kvenna. Leikið var í Kaplakrika. FH er í fjórða sæti en nálgast Víking í þriðja sæti. Aðeins munar tveimur stigum á liðunum þegar þau eiga þrjá leiki eftir hvort.
Afturelding er næst neðst með 11 stig, stigi á undan Fram sem á leik inni við Fjölni á þriðjudagskvöld. Fjölnir er næsta lið fyrir ofan Aftureldingu.
Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.
Víkingur – Fjölnir 23:28 (10:13).
Mörk Víkings: Valgerður Elín Snorradóttir 12, Auður Brynja Sölvadóttir 2, Andrea Ósk Þorkelsdóttir 2, Hafdís Shizuka Iura 2, Helga Lúðvíka Hallgrímsdóttir 2, Emilía Ína Burknadóttir 1, Emilía Ína Burknadóttir 1, Sara Björg Davíðsdóttir 1.
Varin skot: Þyri Erla L. Sigurðardóttir 5, Klaudia Katarzyna Kondras 1.
Mörk HK: Leandra Náttsól Salvamoser 4, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 4, Inga Fanney Hauksdóttir 4, Sóley Ívarsdóttir 3, Katrín Hekla Magnúsdóttir 3, Tinna Ósk Gunnarsdóttir 3, Amelía Laufey G. Miljevic 2, Þórhildur Braga Þórðardóttir 2, Hekla Sóley Halldórsdóttir 1, Selma Sól Ómarsdóttir 1, Ester Amíra Ægisdóttir 1.
Varin skot: Danijela Sara B. Björnsdóttir 11.
FH – Afturelding 34:23 (17:12).
Mörk FH: Thelma Dögg Einarsdóttir 7, Eva Guðrúnardóttir Long 5, Katrín Ósk Ástþórsdóttir 5, Eva Aðalsteinsdóttir 4, Gyða Kristín Ásgeirsdóttir 4, Ragnhildur Edda Þórðardóttir 3, Hafdís Hera Arnþórsdóttir 2, Telma Medos 2, Dagný Þorgilsdóttir 1, Ólafía Þóra Klein 1.
Varin skot: Szonja Szöke 14, Sigrún Ásta Möller 3.
Mörk Aftureldingar: Katrín Helga Davíðsdóttir 8, Susan Ines Barinas Gamboa 7, Drífa Garðarsdóttir 3, Katrín Erla Kjartansdóttir 3, Karen Hrund Logadóttir 2.
Varin skot: Ingibjörg Gróa Guðmundsdóttir 7, Áslaug Ýr Bragadóttir 2.
Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.


