- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Víkingur er áfram efstur – Grótta skoraði 50 mörk í Eyjum

- Auglýsing -

Víkingur heldur áfram traustum höndum um efsta sæti Grill 66-deildar karla í handknattleik eftir leiki dagsins. Áfram eru Víkingar sjónarmun fyrir ofan Gróttu á toppnum. Víkingur lagði HK 2, með 14 marka mun, 41:27, í Kórnum. Nánast á sama tíma skoruðu leikmenn Gróttu 50 mörk hjá botnliðinu, HBH, í viðureign liðanna í Vestmannaeyjum, 50:36, sem er einnig 14 marka munur sé tíðindamaður ekki farinn að ryðga við frádráttinn sem með naumindum tókst að læra í barnaskóla.


Grótta er með 34 stig eins og Víkingur. Síðarnefnda liðið stendur betur að vígi í innbyrðis leikjum liðanna á keppnistímabilinu.

Þrjár umferðir eru eftir óleiknar í deildinni auk tveggja leikja.

Valur 2 er í þriðja sæti deildarinnar eftir nauman sigur á Fram 2, 32:31, í N1-höllinni í dag. Loks gerðu Hörður og Haukar 2 jafntefli í íþróttahúsinu Torfnesi. Harðarmenn eru væntanlega að safna kröftum fyrir umspilið. Þeir eru stigi á eftir Fjölni sem situr í 5. sæti.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

Úrslit leikja dagsins í Grill 66-deild karla.

HK 2 – Víkingur 27:41 (10:20).

Mörk HK 2: Elmar Franz Ólafsson 5, Viktor Bjarki Einarsson 5, Örn Alexandersson 5, Ingibert Snær Erlingsson 4, Hallgrímur Orri Pétursson 2, Mikael Máni Weisshappel Jónsson 2, Kristófer Stefánsson 1, Júlíus Elfar Valdimarsson 1, Patrekur Jónas Tómasson 1, Styrmir Hugi Sigurðarson 1.
Varin skot: Patrekur Guðni Þorbergsson 5.

Mörk Víkings: Kristófer Snær Þorgeirsson 9, Kristján Helgi Tómasson 7, Stefán Scheving Th. Guðmundsson 6, Ásgeir Snær Vignisson 3, Felix Már Kjartansson 3, Ísak Óli Eggertsson 3, Sigurður Páll Matthíasson 3, Þorfinnur Máni Björnsson 3, Halldór Ingi Óskarsson 2, Páll Þór Kolbeins 2.
Varin skot: Rökkvi Pacheco Steinunnarson 14, Daði Bergmann Gunnarsson 6.

HBH – Grótta 36:50 (19:24).

Mörk HBH: Bergvin Haraldsson 11, Egill Oddgeir Stefánsson 6, Heimir Halldór Sigurjónsson 5, Hinrik Hugi Heiðarsson 4, Andri Magnússon 3, Einar Bent Bjarnason 3, Adam Smári Sigfússon 1, Bogi Guðjónsson 1, Fannar Ingi Gunnarsson 1, Tómas Runi Gunnarsson 1.
Varin skot: Gabríel Ari Davíðsson 7, Helgi Þór Adolfsson 2.

Mörk Gróttu: Bessi Teitsson 9, Atli Steinn Arnarson 8, Tómas Bragi Lorriaux Starrason 7, Antoine Óskar Pantano 6, Gunnar Hrafn Pálsson 5, Ari Pétur Eiríksson 4, Sæþór Atlason 4, Alex Kári Þórhallsson 2, Hannes Grimm 2, Kári Kvaran 2, Gísli Örn Alfreðsson 1.
Varin skot: Þórður Magnús Árnason 6, Hannes Pétur Hauksson 5.

Hörður – Haukar 2 27:27 (13:14).

Mörk Harðar: Guilherme Carmignoli De Andrade 8, Jose Esteves Lopes Neto 7, Shuto Takenaka 5, Endijs Kusners 4, Axel Vilji Bragason 2, Kei Anegayama 1.
Varin skot: Hermann Alexander Hákonarson 6, Stefán Freyr Jónsson 5.

Mörk Hauka 2: Daníel Wale Adeleye 11, Bjarki Már Ingvarsson 3, Daníel Máni Sigurgeirsson 3, Jónsteinn Helgi Þórsson 3, Bóas Karlsson 2, Helgi Marinó Kristófersson 2, Szymon Kowal 2, Gústaf Logi Gunnarsson 1.
Varin skot: Ari Dignus Maríuson 11.

Valur 2 – Fram 2 32:31 (18:16).

Mörk Vals 2: Matthías Ingi Magnússon 12, Logi Finnsson 6, Sigurður Atli Ragnarsson 6, Bjarki Snorrason 5, Ísak Buur Þormarsson 1, Kári Steinn Guðmundsson 1, Knútur Gauti Eymarsson Kruger 1.
Varin skot: Jens Sigurðarson 17, Anton Máni Francisco Heldersson 1.

Mörk Fram 2: Gabríel Jónsson Kvaran 8, Arnþór Sævarsson 7, Kristófer Tómas Gíslason 5, Max Emil Stenlund 5, Mikael Hrafn Loftsson 2, Alex Adam Gunnlaugsson 1, Dagur Árni Sigurjónsson 1, Daníel Stefán Reynisson 1, Tindur Ingólfsson 1.
Varin skot: Garpur Druzin Gylfason 8.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -