Frisch Auf Göppingen og HC Erlangen, sem íslenskir landsliðsmenn leika með í þýsku 1. deildinni, töpuðu viðureignum sínum í gærkvöld. Göppingen tapaði fyrir THW Kiel, 28:24, á heimavelli og HC Erlangen beið lægri hlut fyrir Flensburg, 34:29, eftir að hafa lent mest 10 mörkum undir, 31:21, þegar leið á síðari hálfleik.
Viggó Kristjánsson skoraði ekki mark fyrir Flensburg í fimm markskotum. Hann gaf þrjár stoðsendingar.
Andri Már Rúnarsson skoraði fjögur mörk og gaf tvær stoðsendingar.
Simon Pytlick var markahæstur hjá Flensburg með átta mörk en Maciej Gebala skoraði sjö mörk fyrir HC Erlangen.
HC Erlangen er í 13. sæti af 18 liðum deildarinnar með 14 stig eftir 22 leiki. Flensburg er í öðru sæti með 35 stig.
Stóðu aðeins í Kiel
Ýmir Örn Gíslason skoraði ekki mark fyrir Göppingen í tapinu fyrir THW Kiel. Göppingen var tveimur mörkum undir í hálfleik, 12:10.
Erik Persson skoraði fimm mörk fyrir Göppingen. Hendrik Pekeler var atkvæðamestur leikmanna Göppingen með sex mörk.
THW Kiel færðist upp í fjórða sæti deildarinnar með sigrinum. Göppingen er í 11. sæti.
Staðan:




