Elmar Erlingsson átti góðan leik með Nordhorn-Lingen þegar liðið gerði jafntefli við Bayer Dormagen á útivelli, 33:33, í næstefstu deild þýska handknattleiksins í gær. Elmar skoraði fimm mörk og gaf fimm stoðsendingar.
Christian Wilhelm jafnaði metin fyrir Nordhorn þegar hálf önnur mínúta var til leiksloka. Eftir það sat allt fast og hvorugu liðinu lánaðist að tryggja sér bæði stigin.
Nordhorn-Lingen situr í fimmta sæti deildarinnar með 28 stig eins og Potsdam. Elbflorenz og Balingen hafa 30 stig hvort í öðru til þriðja sæti. Bietigheim er efst með 32 stig.
Skammt er á milli leikja hjá Nordhorn. Á miðvikudaginn kemur lið Dessau-Roßlauer HV í heimsókn og sunnudaginn eftir viku fara leikmenn Nordhorn til suður-Þýskalands og mæta toppliði SG BBM Bietigheim. Viku síðar, 8. mars, kemur Balingen í heimsókn til Nordhorn.
Staðan:



