- Auglýsing -
H71 og Kyndill urðu í gær bikarmeistarar í Færeyjum. H71 lagði Kyndil örugglega, 37:28, í karlaflokki. Í kvennaflokki hrósaði Kyndill sigri með því að leggja VÍF frá Vestmanna, 29:26. Íslendingurinn Jakob Jónsson er í þjálfarateymi kvennaliðs Kyndils sem vann bikarinn þriðja árið í röð.
Landsliðskonan Turið Arge Samuelsen, sem eitt sinn lék með Haukum, varð markahæst hjá Kyndli í úrslitaleiknum með átta mörk.
Báðir úrslitaleikirnir fóru fram í þjóðarhöllinni, við Tjarnir. Þar hefur einnig verið leikið til úrslita í bikarkeppni yngri flokkana alla helgina.
Kyndil og H71 eru steypavinnarar 2026
- Auglýsing -



