Á huldu er hvort Bjarni Ófeigur Valdimarsson geti leikið með KA gegn ÍR í undanúrslitum bikarkeppninnar á Kuehne + Nagel á fimmtudagskvöld klukkan 20.15.
„Ég er með beinflís og slitið liðband í putta,“ segir Bjarni Ófeigur við Handkastið í dag. Bjarni Ófeigur meiddist í viðureign KA og Vals laugardaginn 14. febrúar og var ekki með í sigurleik KA á ÍBV í KA-heimilinu í gær.
„Það verður hreinlega að koma í ljós hvort ég geti spilað á fimmtudaginn,“ segir Bjarni Ófeigur enn fremur við Handkastið.
Bjarni Ófeigur, sem er næstmarkahæsti leikmaður Olísdeildar og hefur svo sannarlega átt frábæra leiktíð með KA, er ekki eini leikmaður KA sem óvissa ríkir um hvort geti tekið þátt í undanúrslitaleik bikarkeppninnar. Fram kom í síðustu viku fór Morten Linder úr axlarlið í viðureigninni við Val.



