- Auglýsing -
Landsliðsfyrirliðinn Ómar Ingi Magnússon var í liði 22. umferðar þýsku 1. deildarinnar í handknattleik í gær. Ómar Ingi lék afar vel og skoraði átta mörk, aðeins eitt úr vítakasti, og var með fullkomna skotnýtingu í 17 marka sigri Magdeburg á GWD Minden í GETEC Arena í Magdeburg í gær.
Samherji Ómars Inga, Daninn Magnus Saugstrup, er einnig í úrvalsliðinu en hann þótti leika afar vel, jafnt í vörn sem sókn.
Margir þýskir handknattleiksáhugamenn velta fyrir sér í athugasemdum við færslu þýsku 1. deildarkeppninnar á liði 22. umferðar í fjarveru Svíans Lucas Sandell. Hann skoraði 13 mörk og leiddi endurkomu Rhein-Neckar Löwen í sigrinum á Lemgo á föstudagskvöld.

Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -


