Jón Ásgeir Eyjólfsson, línu- og varnarmaður Stjörnunnar, hefur skrifað undir þriggja ára samning við handknattleiksdeild Vals. Samningurinn tekur gildi 1. júní nk. Jón Ásgeir er 23 ára gamall og hefur skorað 24 mörk í 12 leikjum í Olísdeildinni á leiktíðinni sem stendur yfir.
„Ég er mjög sáttur með að fá Jón Ásgeir til liðs við okkur fyrir næsta tímabil. Ég hef mikla trú á honum jafnt í vörn sem sókn. Hann hefur mikla hæð og styrk sem nýtist beggja megin á vellinum. Eins er hugarfar hans og viðhorf til fyrirmyndar. Ég er viss um að hann muni bæta sig og um leið taka næsta skref á sínum ferli hjá okkur. Hann er því góð viðbót við okkar leikmannahóp,“ er haft eftir Ágústi Þór Jóhannssyni þjálfara Vals í tilkynningu félagsins.
Jón Ásgeir er annar leikmaður Stjörnunnar sem staðfest er að rói á ný mið að keppnistímabilinu loknu. Hinn er Adam Thorstensen markvörður sem samdi við VfL Lübeck-Schwartau á dögunum.



