Haukur Þrastarson og Gísli Þorgeir Kristjánsson hafa gefið flestar stoðsendingar í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Haukur er efstur og hefur verið það nánast frá fyrstu umferð. Hann hefur gefið 110 stoðsendingar í 22 leikjum. Gísli Þorgeir er nú sendingum á eftir. Daninn Mathias Gidsen, sem mjög er haldið á lofti, er í þriðja sæti með 96 sendingar í 23 leikjum. Hann hefur leikið einum leik fleiri en Haukur og Gísli.
Ómar Ingi Magnússon og Viggó Kristjánsson eru á topp 10 með 63 sendingar hvor. Viggó hefur leikið 17 leiki í deildinni en Ómar Ingi 22.
Hér fyrir neðan er listi yfir þá 20 leikmenn sem gefið hafa flestar stoðsendingar í þýsku 1. deildinnni. Leikjafjöldi er innan sviga fyrir aftan fjölda sendinga.
Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen, 110 (22).
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg, 101 (22).
Mathias Gidsel, Füchse Berlin, 96 (23).
Jacob Lassen, HSV Hamburg, 89 (23).
Marian Michalczik, TSV Hannover-Burgdorf, 86 (22).
Julian Köster, VfL Gummersbach, 70 (21).
Simon Pytlick, SG Flensburg-Handewitt, 70 (22).
Elias Ellefsen á Skipagøtu, THW Kiel, 64 (19).
Sören Steinhaus, Bergischer HC, 64 (22).
Kai Häfner, TVB Stuttgart, 64 (22).
Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg, 63 (22).
Viggó Kristjánsson, HC Erlangen, 63 (17).
Dainis Kristopans, MT Melsungen, 62 (22).
Niels Versteijnen, TBV Lemgo Lippe, 62 (21).
Lasse Andersson, Füchse Berlin, 60 (16).
Nicolaj Jørgensen, HSV Hamburg, 58 (23).
Filip Vistorop, HSG Wetzlar, 58 (22).
Eric Johansson, THW Kiel, 57 (21).
Leif Tissier, TSV Hannover-Burgdorf, 55 (20).
Dani Baijens, Rhein-Neckar Löwen, 53 (22).




