Svo kann að fara að Rhein-Neckar Löwen tapi stigunum tveimur sem liðið vann í viðureign við Lemgo í þýsku 1. deildinni í handknattleik á föstudaginn. Samkvæmt óstaðfestum fregnum Mannheimer Morgen var einn leikmaður Rhein-Neckar Löwen sem tók þátt í leiknum ekki skráður á leikskýrslu. Reynist fregnin rétt á Rhein-Neckar á hættu að vera dæmdur ósigur í leiknum.
Ekkert hefur enn heyrst frá stjórnendum þýsku deildarinnar né félaginu vegna málsins.
Tapist leikurinn verður það meiriháttar áfall fyrir Rhein-Neckar Löwen, sem Haukur Þrastarson leikur með, í kapphlaupi liðsins um sæti í Evrópukeppni á næstu leiktíð.
Að sama skapi yrðu stigin tvö vatn á myllu Lemgo sem færi upp að hlið THW Kiel í fjórða sæti deildarinnar, stigi á eftir Flensburg og tveimur stigum á eftir Füchse Berlin sem er í öðru sæti með 36 stig. Magdeburg er efst með 40 stig.
Haukur og félagar sneru við taflinu – Skiptur hlutur í botnslag hjá Rúnari


