- Auglýsing -
Franska handknattleikssambandið hefur boðað til blaðamannafundar í dag. Efni fundarins er framtíð Guillaume Gille landsliðsþjálfara karla. Samningur hans er að renna sitt skeið og eftir að Frakkar komust ekki í undanúrslit á EM í síðasta mánuði var Gille gagnrýndur í fjölmiðlum heima fyrir.
Ekki liggur fyrir hvort nýr samningur við Gille verður kynntur á fundinum eða hvort hann ætli að láta störfum. Líklegra þykir en ekki að Gille skrifi undir nýjan samning og fái nýjan aðstoðarmann.
Gille hefur stýrt landsliðinu í sex ár og er einn fárra manna sem unnið hefur Evrópumeistaratitilinn bæði sem leikmaður og þjálfari.
- Auglýsing -



