- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ísland dróst í riðil með Evrópumeisturunum í lokakeppni EM 20 ára

- Auglýsing -

Ísland verður í riðli með Evrópumeisturum Spánar á Evrópumóti karla í handknattleik sem fram fer í Rúmeníu í sumar. Þetta varð ljóst þegar dregið var í riðla keppninnar í dag. Auk þess eiga landslið Austurríkis og Lettlands sæti í riðlinum.

Mótið fer fram í borgunum Cluj-Napoca og Turda í norðurhluta Rúmeníu frá 8. til 19. júlí.

Spánn varð í öðru sæti á HM 19 ára landsliða í Kaíró í ágúst eftir tap fyrir Þýskalandi í úrslitaleik þar sem úrslitin réðust í bráðabana. Ísland hafnaði í sjötta sæti. Austurríki lenti í 15. sæti en Lettar voru ekki á meðal þátttökuliða.

Riðlaskipting:

A-riðill:B-riðill:
ÞýskalandSerbía
PortúgalSviss
FrakklandFæreyjar
GrikklandTyrkland
C-riðill:D-riðill:
ÍslandDanmörk
SpánnNoregur
AusturríkiKróatía
LettlandN-Makedónía
E-riðill:F-riðill:
SvíþjóðUngverjaland
RúmeníaSlóvenía
ÍsraelTékkland
BosníaPólland
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -