- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Gille hættur – Dujshebaev tekur við – fyrsti leikur í mars

- Auglýsing -

Eftir þrjú mót í röð án úrslitaleiks um gullverðlaun hefur Guillaume Gille verið leystur frá starfi landsliðsþjálfara Frakklands. Við starfinu tekur Talant Dujshebaev sem um leið verður fyrsti útlendingurinn til að stýra franska karlalandsliðinu í handknattleik síðan Þjóðverjinn Bernhard Kempa var landsliðsþjálfari 1958.

Var samningsbundinn til 2028

Gille greindi sjálfur frá starfslokum sínum á blaðamannafundi með forseta franska handknattleikssambandsins í dag. Gille, sem var samningsbundinn fram til ársins 2028, segir að hann hafi hoggið á hnútinn.

Gille tók við starfi landsliðsþjálfara 2020 þegar Didier Dinart var sagt upp störfum að loknu Evrópumótinu. Gille var aðstoðarþjálfari landsliðsins undir stjórn Dinart frá 2016. Undir stjórn Gille varð franska landsliðið Ólympíumeistari 2021 í Japan og Evrópumeistari 2024. Gille er aðeins einn þriggja manna sem orðið hefur Ólympíumeistari sem þjálfari og leikmaður. Hinir eru Vladimir Maksimov og Branislav Pokrajac.

Fyrsti leikurin í mars

Í framhaldi af tilkynningu Gille var opinberað að Talant Dujshebaev taki við. Kvittur komst á kreik í morgun um ráðningu Dujshebaev fljótlega eftir að franska handknattleikssambandið boðaði til blaðamannfundar í dag með tilkynningu snemma í morgun.

Fyrsti leikur Frakka undir stjórn Dujshebaev verður við Spánverja eftir miðjan mars.

Dujshebaev, sem þjálfað hefur pólska liðið Industria Kielce í 12 ár, var landsliðsþjálfari Ungverjalands 2014 til 2016 og Póllands 2016 til 2017.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -