- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Handboltahöllin: Óþarfi að búa til tekjuívent fyrir eitt lið í deildinni

- Auglýsing -

Ekki ríkir einhugur innan handboltahreyfingarinnar um að leika undanúrslitaleiki og úrslitaleiki bikarkeppni karla og kvenna á Ásvöllum en þar verður leikið í fjórða sinn á síðustu fimm árum. Haukar njóti heimavallarins með bæði lið sín í undanúrslitum auk þess sem félagið krækir í tekjur af viðburðinum umfram önnur félög í Olísdeildum.

Einar Ingi er andvígur

Málið kom til umræðu í Handboltahöllinni á mánudagskvöld þar sem Einar Ingi Hrafnsson, sérfræðingur þáttarins og framkvæmdastjóri Aftureldingar, sagðist vera andvígur þessu fyrirkomulagi og stakk m.a. upp á að HSÍ skipti við KKÍ leiki úrslitaleiki bikarkeppninnar í Smáranum í Kópavogi. Á móti gæti karfan flutt sig á heimavöll Fram.

Býður upp á ójafnvægi

„Það er boðið upp á ójafnvægi með þessu,“ segir Einar Ingi og benti á að Haukar leiki til undanúrslita á heimavelli bæði í kvenna- og karlaflokki. Þar gangi leikmenn inn í sína klefa, sitt umhverfi. „Þetta getur hjálpað. Við sáum Haukastelpurnar klára þetta í fyrra. Það fylgir þessu ákveðið forskot sem er óþarfi,“ segir Einar Ingi og bætti við.

„Mér finnst óþarfi að búa til tekjuívent fyrir eitt lið í deildinni eins og final four,“ segir Einar Ingi.

Ásbjörn Friðriksson tók undir með Einari en benti á í gamansömum tón að Haukar hefðu tapað þremur leikjum í röð á Ásvöllum og átti þar væntanlega við karlaliðið.

Fyrstu leikir í kvöld

Undanúrslitaleikir bikarkeppni kvenna fara fram í Kuehne+Nagel-höllinni, Ásvöllum í kvöld. Haukar og Fram mætast klukkan 18 en Valur og KA/Þór kl. 20.15.

Annað kvöld, fimmtudag, eigast við Haukar og FH klukkan 18 og ÍR og KA klukkan 20.15.

Úrslitaleikirnir verða á laugardaginn í Kuehne+Nagel-höllinni, Ásvöllum klukkan 15.30 og 18.30.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -