- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Valur leikur til úrslita í bikarnum í sautjánda sinn

- Auglýsing -

Valur leikur til úrslita í bikarkeppni kvenna í handknattleik í sautjánda sinn á laugardaginn. Valsliðið lagði KA/Þór, 29:22, í undanúrslitaleik í Kuehne+Nagel-höllinni, Ásvöllum í kvöld eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik, 16:13.

Valur mætir Haukum í úrslitaleik sem hefst klukkan 15.30 á laugardaginn á sama stað og undanúrslitaleikurinn.


Yfirburðir Vals í leiknum í kvöld voru aldrei eins miklir og margir reiknuðu með. KA/Þórsliðinu tókst að halda hraðanum niðri og leika af yfirvegun í sóknarleiknum. Valur komst ekki yfir fyrr en vel var liðið á síðari hálfleik, 15:10.

KA/Þór hóf síðari hálfleik með tveimur fyrstu mörkunum og minnkaði forskot Vals í eitt mark, 16:15. Lengra komst Akureyrarliðið ekki. Valur tók völdin, ekki síst batnaði vörnin og mistökum KA/Þórsara fjölgaði. Valur náði mest níu marka forskoti þegar á síðari hálfleik leið.

Leikurinn var mikil skemmtun og hraðinn var mikill frá upphafi til enda.


Mörk Vals: Þórey Anna Ásgeirsdóttir 8/5, Lovísa Thompson 6, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 3, Guðrún Hekla Traustadóttir 2, Elísa Elíasdóttir 2, Ásdís Þóra Ágústsdóttir 2/1, Thea Imani Sturludóttir 1, Arna Karitas Eiríksdóttir 1, Lilja Ágústsdóttir 1, Mariam Eradze 1, Hildur Björnsdóttir 1, Sara Lind Fróðadóttir 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 10, 34,5% – Elísabet Millý Elíasardóttir 0.

Mörk KA/Þórs: Anna Þyrí Halldórsdóttir 4, Tinna Valgerður Gísladóttir 4/1, Susanne Denise Pettersen 4, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir, 4, Elísa Björg Guðmundsdóttir 1, Trude Brelstrud Hakonsen 1, Lydía Gunnþórsdóttir 1, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 1, Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir 1, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 1.
Varin skot: Bernadett Leiner 9, 25,7% – Selma Sigurðardóttir 0.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

Handbolti.is fylgdist með leik Vals og KA/Þórs í textalýsingu hér fyrir neðan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -