- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Elmar, Viktor, Tjörvi, Lena, Berta, Birgir

- Auglýsing -
  • Elmar Erlingsson skoraði ekki mark en átti tvær stoðsendingar þegar Nordhorn vann Dessauer, 34:30, í næstefstu deild þýska handknattleiksins í gærkvöld. Nordhorn er í fjórða til fimmta sæti deildarinnar með 30 stig eftir 21 leiki. Bietigheim er efst með 34 stig.
  • Viktor Petersen Norberg skoraði fimm mörk og var einu sinni vikið af leikvelli í sigri HC Elbflorenz 2006 á Eintracht Hagen, 27:24, í næstefstu deild þýsku 2. deildarinnar í gærkvöld. Elbflorenz er í þriðja sæti með 32 stig.
  • Tjörvi Týr Gíslason skoraði eitt mark í fimm marka tapi HC Oppenweiler/Backnang fyrir Ferndorf, 28:23. Oppenweiler/Backnang er sem fyrr neðst með 2 stig í 21 leik.
  • Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði tvö mörk og gaf tvær stoðsendingar í níu marka sigri Skara HF á Kristianstad HK, 34:25, í sænsku úrvalsdeildinni í gær. Berta Rut Harðardóttir skoraði einnig tvö mörk og gaf tvær stoðsendingar fyrir Kristianstad HK í leiknum sem fram fór í Skara. Aðeins 12 leikmenn voru á skýrslu hjá Kristianstad HK sem er í 10. sæti af 12 liðum með 13 stig. Skara er hins vegar í þriðja sæti með 27 stig að loknum 20 leikjum.
  • Birgir Steinn Jónsson skoraði fimm mörk fyrir IK Sävehof í sex marka sigri liðsins í heimsókn til Helsingborg, 35:29, í sænsku úrvalsdeildinni í gær. IK Sävehof situr í fjórða sæti með 27 stig eftir 22 af 26 umferðum.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -