- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Þrefaldur áfangi Kára í bikarkeppninni

- Auglýsing -

Kári Garðarsson er væntanlega fyrsti handknattleiksdómarinn sem dæmir leiki í úrslitahelgi bikarkeppninnar í handknattleik sem unnið hefur til verðlauna í bikarkeppninni í handknattleik, bæði sem leikmaður og þjálfari.


Kári dæmdi undanúrslitaleik Vals og KA í bikarkeppni kvenna í gærkvöld ásamt nafna sínum Magnúsi Kára Jónssyni.

Kári var annar markvörður silfurliðs Gróttu í bikarkeppni karla vorið 2009 en liðið tapaði fyrir Val, 31:24, í úrslitaleik í Laugardalshöll. Grótta var þá í næstefstu deild. Auk þess að vera annar markvörður Gróttu mun Kári hafa verið aðstoðarþjálfari liðsins. Ágúst Þór Jóhannsson var aðalþjálfari.

Kári stýrði sigursælu liði kvennaliði Gróttu um árabil og vann liðið m.a. bikarkeppnina 2015 undir stjórn hans. Grótta vann Val, 29:14, í úrslitaleik í Laugardalshöll.

Lovísa lék undir stjórn Kára

Þess má til viðbótar geta að meðal leikmanna hjá Gróttuliðinu sem varð Íslands- og bikarmeistari undir stjórn Kára 2015 var Lovísa Thompson sem var næstmarkahæsti leikmaður Vals í undanúrslitaleiknum sem Kári dæmdi í gærkvöld á Ásvöllum.

Kári vann silfurverðlaun sem þjálfari í bikarkeppninni 2016. Grótta tapaði fyrir Stjörnunni, 20:16, í úrslitaleiknum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -