- Auglýsing -
Bjarki Már Elísson leikur ekki með ungverska meistaraliðinu One Veszprém næsta mánuðinn vegna meiðsla í hné. Félagið segir frá þessu en Bjarki Már mun hafa meiðst í viðureign One Veszprém og Kielce í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku. Vegna meiðslanna er ósennilegt að Bjarki Már taki þátt í landsleikjum Íslands og Svíþjóðar hér á landi 19. og 21. mars.
Zsolt Mahunka, læknir One Veszprém, segir á heimasíðu félagsins að við myndatöku hafi komið í ljós beinmar í sköflungsbeinshausnum í öðru hné Bjarka Más. „Sem betur fer sýndu myndirnar engan liðbandaskaða, þannig að við gerum ráð fyrir fjögurra vikna hvíld,“ segir Mahunka læknir sem er bjartsýnn á að Bjarki Már mæti til leiks aftur eftir mánuð.
- Auglýsing -



