- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Sveinn Brynjar skaut ÍR í úrslit í fyrsta sinn í 12 ár

- Auglýsing -

Eftir ótrúlegan lokakafla tókst ÍR að leggja KA, 32:31, og tryggja sér sæti í úrslitaleik bikarkeppni karla í handknattleik í fyrsta sinn í 12. Eins og fyrir 12 árum þá mæta ÍR-ingar Haukum í úrslitaleiknum. Sigurinn nú er mikið afrek af hálfu ÍR-liðsins sem hefur ekki unnið marga leiki á leiktíðinni auk þess sem það varð fyrir miklu áfalli eftir um 10 mínútur þegar markakóngur liðsins, Baldur Fritz Bjarnason, meiddist á fótlegg og kom ekkert meira við sögu.

Sveinn skoraði sigurmarkið

Sveinn Brynjar Agnarsson skoraði sigurmarkið fimm sekúndum fyrir leikslok eftir rúmlega mínútna langa sókn ÍR-liðsins. Í miðri sókn virtist liðið hafa misst boltann en brot á Jökli Blöndal Björnssyni, sem dómarar leiksins sáu eftir að hafa litið á skjáinn, varð til þess að ÍR hélt áfram sókn.

Alexander varði

Alexander Ásgrímsson markvörður ÍR var einn þeirra sem reið baggamuninn er hann varði frá Giorgi Arvelodi Dikhaminjia úr opnu færi 70 sekúndum fyrir leikslok í jafnri stöðu.

ÍR-ingar voru með yfirhöndina í leiknum frá upphafi og þangað til loka er svo virtist sem KA væri að ná einu af sínum þekktu endasprettum. ÍR var þremur mörkum yfir í hálfleik, 16:13, og náði fimm marka forskoti seint í síðari hálfleik, 28:23. Eftir það kom áhlaup KA-manna sem hafði nærri því fært þeim sigurinn.

Kátir stuðningsmenn ÍR á Ásvöllum í kvöld. Ljósmynd/J.L.Long

Sjö KA mörk gegn einu

KA skoraði sjö mörk gegn einu frá ÍR á átta mínútna kafla, 30:29, fyrir KA þegar rúmar þrjár mínútur voru til leiksloka. Svo virtist sem ÍR-ingar væru að brotna. En þvert á allar spár risu ÍR-ingar upp eins og fuglinn Föxix á síðustu mínútunum. Þeir létu mótlætið og frábæran leik Ágústs Elís Björgvinssonar ekki slá sig úr laginu. Þeir sneru taflinu við á hreint ótrúlegan hátt og unnu á eftirminnilegan hátt.


Mörk ÍR: Jökull Blöndal Björnsson 10/2, Róbert Snær Örvarsson 6, Elvar Otri Hjálmarsson 5, Baldur Fritz Bjarnason 3/2, Bernard Kristján Owusu Darkoh 3, Patrekur Smári Arnarsson 2, Sveinn Brynjar Agnarsson 2, Eyþór Ari Waage 1.
Varin skot: Alexander Ásgrímsson 10, 26,3 – Ólafur Rafn Gíslason 0.

Mörk KA: Einar Rafn Eiðsson 7/6, Giorgi Arvelodi Dikhaminjia 7, Dagur Gautason 5, Jens Bragi Bergþórsson 4, Einar Birgir Stefánsson 3, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 3, Magnús Dagur Jónatansson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 13/2, 37,1% – Bruno Bernat 2, 18,2%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

Handbolti.is er á Ásvöllum og fylgist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -