- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Andri og Viggó í jafntefli í Eisenach

- Auglýsing -

Andri Már Rúnarsson, Viggó Kristjánsson og samherjar í HC Erlangen fengu annað stigið úr heimsókn sinni til Eisenach í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld, 25:25. Eisenach var þremur mörkum yfir í hálfleik, 13:10. Bæði lið þurftu á sigri að halda í neðri hluta deildarinnar. Eisenach er með 16 stig í 12. sæti og Erlangen er stigi á eftir í 14. sæti eftir 23 leiki af 34.


Viggó Kristjánsson skoraði þrjú mörk en átti átta skot á markið, skoraði til að mynda eitt mark úr fimm skotum utan að velli. Mörkin þrjú nægðu til þess að Viggó rauf 1.000 marka múrinn í þýsku 1. deildinni.

Andri Már skoraði tvö mörk í fjórum skotum. Skráningu stoðsendinga virðist ábótavant í leiknum. Hvorki Andri Már eða Viggó eru skráðir fyrir sendingu en aðeins þrjár stoðsendingar eru bókaðar hjá öllum leikmönnum Erlangen.

Sjö marka tap í Lemgo

Leikmenn Lemgo halda áfram að leika við hvern sinn fingur. Þeir lögðu SHV Hamburg, 39:32, á heimavelli í gærkvöld. Einar Þorsteinn Ólafsson skoraði ekki mark fyrir Hamborgarliðið en var vafalítið að vanda með í vörninni.


Staðan:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -