Ósennilegt er talið að Baldur Fritz Bjarnason leiki með ÍR í úrslitaleik bikarkeppni HSÍ gegn Haukum á morgun, laugardag. Baldur fór meiddur af leikvelli eftir átta mínútur í viðureign ÍR og KA í undanúrslitum í gærkvöld. Naut hann aðhlynningar sjúkraþjálfara ÍR og haltraði síðan af leikvelli með aðstoð samherja sinna.
Bjarni Fritzson þjálfari ÍR segir við Handkastið að Baldur hafi upp á síðkasti átt í meiðslum í hægri ökkla sem hafi versnað í viðureigninni í gær.
„Staðan er ekki góð, hann sneri sig illa á ökkla og hefur verið að glíma við það í síðustu leikjum,“ sagði Bjarni við Handkastið en Bjarni hefur ekki haft tök á að svara fyrirspurn handbolta.is í dag um líðan Baldurs og horfur enda er í mörg horn að líta.

Baldur Fritz er kjölfestuleikmaður ÍR-liðsins, markakóngur Olísdeildar síðustu leiktíðar og markahæsti maður deildarinnar um þessar mundir.
Úrslitaleikur ÍR og Hauka hefst klukkan 18.30 á morgun í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum. Miðasala á úrslitaleiki karla og kvenna fer fram á stubb.is.



