Haukar og Valur eigast við í úrslitaleik bikarkeppni kvenna í handknattleik á morgun í Kuehne+Nagel höllinni, Ásvöllum, á morgun, laugardag. Flautað verður til leiks klukkan 15.30.
Haukar unnu bikarkeppnina fyrir ári í fimmta sinn. Lið félagsins leikur í tíunda sinn til úrslita í bikarkeppninni.
Valur leikur í 17. sinn til úrslita í bikarkeppni HSÍ í kvennaflokki á morgun. Alls hefur lið félagsins unnið bikarkeppnina í níu skipti, síðast fyrir tveimur árum.
- Miðasala á úrslitaleiki karla og kvenna fer fram á stubb.is.
Hér fyrir neðan eru úrslit úrslitaleikjum Hauka og Vals í gegnum tíðina.
Úrslitaleikir kvennaliðs Hauka í bikarkeppninni:
1997: Haukar – Valur 16:13.
1999: Fram – Haukar 17:16.
2001: ÍBV – Haukar 21:18 – eftir framlengingu.
2003: Haukar – ÍBV 23:21.
2004: ÍBV – Haukar 35:32.
2006: Haukar – ÍBV 29:26.
2007: Haukar – Grótta 26:22.
2018: Fram – Haukar 30:16.
2025: Haukar – Fram 25:20.
Úrslitaleikir kvennaliðs Vals í bikarkeppninni:
1983: ÍR – Valur 18:17.
1985: Fram – Valur 21:14.
1988: Valur – Stjarnan 25:20.
1993: Valur – Stjarnan 25:23.
1997: Haukar – Valur 16:13.
2000: Valur – Grótta/KR 27:23 – eftir framlengingu.
2010: Fram – Valur 20:19.
2011: Fram – Valur 25:22.
2012: Valur – ÍBV 27:18.
2013: Valur – Fram 25:22.
2014: Valur – Stjarnan 24:19.
2015: Grótta – Valur 29:14.
2019: Valur – Fram 24:21.
2022: Valur – Fram 25:19.
2023: ÍBV – Valur 31:29.
2024: Valur – Stjarnan 25:22.
- Í fyrsta sinn var leikið til úrslita í bikarkeppni kvenna í handknattleik 1976. Ármann vann Fram, 17:15, í tvíframlengdri úrslitaviðureign. Staðan eftir hefðbundinn leiktíma var 11:11.




