Haukar unnu bikarmeistaratitilinn í handknattleik karla í áttunda sinn í kvöld og í fyrsta skipti í 12 ár þegar þeir lögðu ÍR í úrslitaleik á Ásvöllum, 28:21, eftir að hafa verið sjö mörkum yfir í hálfleik, 13:6. Yfirburðir Hauka voru miklir í fyrri hálfleik og forskot liðsins hefði auðveldlega getað verið meira en raun varð á. ÍR-ingar skoruðu aðeins eitt mark á fyrstu 15 mínútunum sem er einsdæmi í bikarúrslitaleik. Þar með tónninn að vissu marki sleginn.
Grétar Ari Guðjónsson átti stórleik í marki Hauka og varði 19 skot, 51,4%
Í síðari hálfleik leysist leikurinn og upp og verður að segjast eins og er skemmtilegri hafa bikarleikirnir verið. Leikur Hauka var kaflaskiptur og ÍR-ingar voru ekki líklegir til að hleypa einhverri spennu í viðureignina.

ÍR-ingar eiga heiður skilinn fyrir að ná svo langt í keppninni. Svo sannarlega var skarð fyrir skildi hjá þeim að vera án Baldurs Fritz Bjarnasonar þegar á hólminn var komið.
Haukar gerðu það sem þeir þurftu til þess að vinna. Þeir lögðu grunn að sigrinum á fimmtudagskvöld með öflugum leik við FH.
Mörk Hauka: Freyr Aronsson 6, Birkir Snær Steinsson 6, Össur Haraldsson 4, Sigurður Snær Sigurjónsson 3, Hergeir Grímsson 2, Skarphéðinn Ívar Einarsson 2, Ólafur Ægir Ólafsson 2, Arnór Róbertsson 1, Jón Ómar Gíslason 1, Andri Fannar Elísson 1.
Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson 19, 51,4% – Magnús Gunnar Karlsson 2, 40%.
Mörk ÍR: Bernard Kristján Owusu Darkoh 7, Elvar Otri Hjálmarsson 3, Jökull Blöndal Björnsson 3/2, Sveinn Brynjar Agnarsson 3/1, Eyþór Ari Waage 2, Róbert Snær Örvarsson 2, Bergþór Róbertsson 1.
Varin skot: Ólafur Rafn Gíslason 5/1, 33,3% – Alexander Ásgrímsson 5, 21,7%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Handbolti.is fylgdist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.



