Elliði Snær Viðarsson átti stórleik þegar Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, gerði sér lítið fyrir og vann stórsigur á THW Kiel, 34:26, á heimavelli Kiel í gærkvöld. Þetta er fyrsti sigur Gummersbach á THW Kiel síðan í september 2006 og aðeins í þriðjs sinn á 42 árum sem Gummersbach vinnur á heimavelli Kiel. Alfreð Gíslason var þjálfari Gummersbach í sigrinum á Kiel í september 2006. Hann hætti tveimur árum síðar hjá Gummersbach og tók við þjálfun THW Kiel.
Elliði Snær skoraði 9 mörk í 10 skotum, var einu sinni vikið af leikvelli og vann boltann einu sinni í vörninni. Teitur Örn Einarsson skoraði eitt mark og gaf eina stoðsendingu.

Gunnurinn að sigrinum var þó lagður með magnaðri frammistöðu Dominik Kuzmanović markvarðar Gummersbach. Hann varði 20 skot, þar af tvö vítaköst. Hlutfallsmarkvarsla hans var 47%. Ljóst er að það verður skarð fyrir skildi hjá Gummersbach í sumar þegar hann færir sig yfir til SC Magdeburg.
Julian Köster var næstmarkahæstur hjá Gummersbach með sjö mörk. Hann verður leikmaður THW Kiel frá og með næsta keppnistímabili.
Lukas Zerbe var markahæstur hjá THW Kiel með fimm mörk. Spænsku og þýsku landsliðsmarkverðirnir, Gonzalo Perez de Vargas og Andreas Wolff, náðu sér engan veginn á strik í marki THW Kiel, vörðu samanlagt átta skot.
Gummersbach er í sjötta sæti þýsku 1. deildarinnar með 31 stig að loknum 22 leikjum. THW Kiel er næst á undan með 34 stig en hefur leikið einum leik fleira. Staðan í deildinni í neðst í þessari grein
Magdeburg vann 11 marka sigur í Kassel
SC Magdeburg gefur ekkert eftir. Liðið er áfram afgerandi efst í deildinni með 42 stig. Magdeburg vann MT Melsungen, 34:23, í Kassel í gærkvöld, aðeins tveimur sólarhringum eftir leik gegn Wisla Plock í Meistaradeild Evrópu.
Ómar Ingi Magnússon, sem fékk frí frá Póllandsferðinni af persónulegum ástæðum, var mættur til Kassel í gærkvöld og skoraði þrjú mörk og gaf eina stoðsendingu. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sex mörk og gaf þrjár stoðsendingar.
Felix Claar fór á kostum og skoraði 12 mörk fyrir SC Magdeburg.
Reynir Þór Stefánsson skoraði fjögur mörk fyrir MT Melsungen og Arnar Freyr Arnarsson tvö. Dainis Krištopāns var markahæstur með fimm mörk.
Staðan:



