Gunnar Magnússon, þjálfari karlaliðs Hauka, hefur nú orðið bikarmeistari sem þjálfari þriggja mismunandi karlaliða. Hann varð einnig bikarmeistari sem þjálfari Aftureldingar 2023 og ÍBV 2015. Eftir því sem næst verður komist hefur enginn þjálfari unnið bikarkeppnina í karlaflokki með þremur mismunandi liðum.
„Er ótrúlega heppinn“
„Ég er stoltur af því. Ég er ótrúlega heppinn. Maður vinnur þetta ekki einn. Ég er heppinn að hafa gott fólk í kringum mig. Bæði í Vestmannaeyjum og Mosfellsbænum hafði ég ótrúlega gott fólk með mér og það er sama hér,“ sagði Gunnar við handbolta.is í gærkvöld.
Þrefaldir Gústaf og Stefán
Tveir þjálfarar hafa unnið bikarkeppni kvenna með þremur mismunandi liðum, Gústaf Björnsson með Fram, Víking og Hauka og Stefán Arnarsson með Val, Fram og Hauka.
Gústaf varð fyrstur til að ná þrennunni þegar Haukar unnu bikarinn undir hans stjórn 2003. Áður hafði hann stýrt Fram til sigurs í bikarkeppninni 1984, 1984, 1986 og 1999 og Víkingi 1992.
Stefán fetaði í fótspor Gústafs á síðasta ári þegar Haukar unnu bikarkeppnina undir hans stjórn og Díönu Guðjónsdóttur. Stefán vann bikarkeppnina fyrst með Val 2012, 2013 og 2014 áður en Fram varð bikarmeistari með Stefán í stól þjálfara 2018 og 2020.
Heimild: RÚV.



