- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Haukur og félögum dæmdur ósigur

- Auglýsing -

Þýska handknattleiksliðið Rhein-Neckar Löwen, sem Haukur Þrastarson leikur með, hefur verið dæmdur ósigur í viðureign sinni við Lemgo í þýsku 1. deildinni á dögunum. Ástæðan er sú að liðið tefldi fram leikmanni sem ekki hafði skrifað undir gerðardómssamning gegn lyfjamisnotkun.


Frá og með upphafi þessa árs var öllum leikmönnum sem taka þátt í þýsku deildarkeppninni skylt að samþykkja slíkra samninga sem er „skilyrðislaus forsenda“ fyrir þátttökurétti, eins og segir í tilkynningu þýsku deildarkeppninnar (HBL) vegna málsins.

„Samkvæmt reglum skal refsing fyrir að uppfylla ekki þetta skilyrði vera sú að liði er dæmdur ósigur,“ útskýrði HBL.

Það er ábyrgð félaga leikmanna að ganga frá samkomulaginu og tilkynna það til þýsku deildarkeppninnar. Virðist hafa verið brotlöm á þessu í tilfelli leikmannsins sem ekki hefur verið nafngreindur.

Hægt er að áfrýja dómi mótstjórnar HBL til dómstóla innan þriggja sólarhringa.

Ætla að snúast til varnar

Holger Bachert framkvæmdastjóri Löwen segir að félagið muni berjast með kjafti og klómum gegn dómi þýsku deildarkeppninnar fyrir dómstólum.

Þótt Rhein-Neckar Löwen hafi verið úrskurðað tap í leiknum, sem það vann á leikvellinum, þá fær Lemgo ekki stigin fyrr en málið hefur verið leitt til lykta fyrir dómstólum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -