- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

EHF frestar leik Ísraels og Grikklands

- Auglýsing -

Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur frestað leik Ísraels og Grikklands í undanriðli EM kvenna 2026 sem fram átti að fara í Rishon-Le-Zion í Ísrael annað kvöld.


Í tilkynningu EHF segir að ekki sé hægt að tryggja öryggi keppnisliðanna í Ísrael auk þess sem samgöngur í lofti til og frá Ísrael eru ótryggar og nánast úr sögunni eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran á laugardaginn.

Viðureign Grikkja og Ísraela sem til stendur að fari fram Kozani á sunnudaginn er enn þá á dagskrá hvað svo sem verður þegar nær dregur helginni.

Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -