- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Alfa Brá er úr leik – Alexandra mætir í staðinn

- Auglýsing -

Fleiri leikmenn landsliðsins hafa helst úr lestinni vegna meiðsla fyrir heimaleikinn við Svartfellinga í undankeppni EM kvenna í handknattleik. Í dag varð Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín úr Fram að draga sig út úr hópnum vegna meiðsla, eftir því sem fram kemur í tilkynningu HSÍ.

Arnar Pétursson hefur valið Alexöndru Líf Arnarsdóttur fyrirliða Hauka í stað Ölfu Brár.


Í gær var tilkynnt að Þórey Anna Ásgeirsdóttir hjá Val væri ólétt og hefði dregið sig út í hópnum. Sonja Lind Sigsteinsdóttir hjá Haukum var kölluð til í stað Þóreyjar Önnu.

Þar á ofan er ósennilegt að Thea Imani Sturludóttir hjá Val verði með vegna meiðsla. Þar með er ekki öll sagan sögð vegna þess að lokapróf í verkfræði stendur fyrir dyrum í vikunni hjá Díönu Dögg Magnúsdóttur og verður hún þar af leiðandi fjarri góðu gamni annað kvöld þegar íslenska landsliðið mætir Svartfellingum á Ásvöllum. Díana Dögg tekur þátt í síðari viðureigninni í Podgorica á sunnudaginn.


Ísland leikur fyrri leik sinn gegn Svartfjallalandi á morgun á Ásvöllum og hefst leikurinn klukkan 18.

Æfingahópur íslenska landsliðsins er skipaður eftirtöldum leikmönnum:

Markverðir:
Hafdís Renötudóttir, Valur, (77/5).
Sara Sif Helgadóttir, Haukar (21/0).

Aðrir leikmenn:
Alexandra Líf Arnarsdóttir, Haukum, (5/3).
Andrea Jacobsen, HSG Blomberg-Lippe (66/116).
Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda (19/44).
Díana Dögg Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (72/97).
– tekur þátt í síðari leiknum við Svartfellinga ytra 8. mars.
Elín Klara Þorkelsdóttir, IK Sävehof (33/119).
Elín Rósa Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (38/78).
Elísa Elíasdóttir, Valur (29/26).
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram (20/27).
Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR (34/35).
Lovísa Thompson, Valur (37/70).
Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR (7/1).
Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar (10/6).
Sandra Erlingsdóttir, ÍBV (45/185).
Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR (3/12).
Sonja Ling Sigsteinsdóttir, Haukum (2/0).
Thea Imani Sturludóttir, Valur (98/224).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -