Kvennalandsliðið í handknattleik tekur á móti landsliði Svartfellinga í Kuehne+Nagel-höllinni á Ásvöllum í kvöld í 3. umferð undankeppni Evrópumótsins klukkan 18. Íslenska landsliðið leitar að fyrstu stigunum í undankeppninni í viðureigninni og þarf á öllum mögulegum stuðningi að halda í baráttunni við að komast í lokakeppni EM sem fram fer í desember.
- Miðasala á landsleikinn fer fram á stubb.is.
Auk landsleiksins mæta nýkrýndir bikarmeistarar Hauka til leiks í Íþróttahöllinni á Akureyri og leika við Þór klukkan 18.30 í upphafsleik 20. umferðar Olísdeildar karla.
Undankeppni EM kvenna, 3. umferð:
Kuehne+Nagel-höllin: Ísland – Svartfjallaland, kl. 18.
-Leikurinn verður sendur út á RÚV2.
Staðan og næstu leikir í undankeppni EM kvenna.
Olísdeild karla, 20. umferð:
Höllin Ak.: Þór – Haukar, kl. 18.30.
-Leikurinn verður sendur út á Handboltapassanum.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.



