Ragnheiður Ragnarsdóttir hægri hornakona Hauka tekur ekki þátt í fleiri leikjum liðsins á keppnistímabilinu. Ragnheiður er barnshafandi. Hennar síðustu leikir fyrir Hauka voru undanúrslita- og úrslitaleikur bikarkeppninnar í síðustu viku. Ragnheiður hefur nánast ekki misst úr leik með meistaraflokki í 15 ár.
Þar með er aðeins ein örvhent kona eftir í Haukaliðinu, Sonja Lind Sigsteinsdóttir.
Ragnheiður er annar leikmaður Haukaliðsins sem er ólétt. Snemma á keppnistímabilinu dró Rut Arnfjörð Jónsdóttir sig í hlé af sömu ástæðu og Ragnheiður gerir nú.
Ragnheiður er einnig önnur handknattleikskonan sem tók sér frí að loknum bikarúrslitunum. Hin er Þórey Anna Ásgeirsdóttir sem einnig leikur í hægra horni en er liðsmaður Vals.


