- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Elín Klara í úrvalsliðinu annan mánuðinn í röð

- Auglýsing -

Annan mánuðinn í röð er Elín Klara Þorkelsdóttir, landsliðskona og leikmaður sænsku deildarmeistaranna IK Sävehof, í úrvalsliði mánaðarins. Í morgun var febrúarmánuður úrvalsdeildarinnar gerður upp og er Elín Klara í úrvalsliði mánaðarins. Hún var einnig í úrvalsliðinu fyrir janúar og a.m.k. í eitt skipti fyrir áramótin.


Elín Klara gekk til liðs við IK Sävehof síðasta sumar. Henni hefur vegnað afar vel með liðinu og er m.a. fjórða markahæst í sænsku úrvalsdeildinni með 124 mörk í 19 leikjum. Einnig hefur Elín Klara gefið 33 stoðsendingar og situr í 29. sæti þess lista.

IK Sävehof varð deildarmeistari síðasta laugardag þótt liðið eigi enn eftir þrjár viðureignir óleiknar. Ljóst er að liðið hefur nokkra yfirburði í deildinni vegna þess að auk Elínar Klöru eiga tveir leikmenn IK Sävehof einnig sæti í úrvalsliði fyrir febrúar.

Elín Klara verður í eldlínunni með kvennalandsliðinu í kvöld þegar það mætir landsliði Svartfjallalands í undankeppni EM á Ásvöllum klukkan 18.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -