- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Wille verður að taka pokann sinn hjá norska landsliðinu

- Auglýsing -

Ekki stendur til hjá norska handknattleikssambandinu að endurnýja starfssamning sinn við Jonas Wille sem þjálfað hefur karlalandsliðið undanfarin fjögur ár. Samningur Wille rennur út 1. júlí. Frá þessu greinir norska handknattleikssambandið í tilkynningu í dag.


Nokkur óánægja hefur verið með Wille nánast frá upphafi og má segja að hann hafi ekki átt sjö dagana sæla. Wille þykir ekki hafa náð út úr norska landsliðinu sem margir telja að búi í því. Síðast hafnaði norska landsliðið í 9. sæti á EM í janúar sl.

Árangur norska landsliðsins undir stjórn Wille:
HM 2023: 6. sæti.
ÓL 2024: 6. sæti.
EM 2024: 9. sæti.
HM 2025: 10. sæti.
EM 2026: 9 sæti.

Annar til að taka næsta skref

Haft er eftir Randi Gustad, formanni norska handknattleikssambandsins, að þrátt fyrir framfarir landsliðsins undir stjórn Wille telji stjórn sambandsins rétt að skipta að fá annan mann í stól þjálfara, þjálfara sem geti náð lengra með landsliðið.


Áður en Wille tók við þjálfun landsliðsins hafði hann verið aðstoðarþjálfari forvera síns, Christian Berge, um nokkurt skeið.

Landsleikir eftir tvær vikur

Norska landsliðið tekur þátt í æfingamóti í Kaupmannahöfn eftir tvær vikur og mætir síðan annað hvort Finnlandi eða Svartfjallalandi í umspili fyrir HM 2027 í maí. Ekki liggur fyrir hvort nýr þjálfari verður tekin við fyrir næstu verkefni landsliðsins.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -