„Við töpuðum með of miklum mun fyrir Svartfellingum á HM og þess vegna erum við staðráðnar í að mæta í leikinn af krafti og svara fyrir síðustu viðureign,“ sagði Katrín Tinna Jensdóttir landsliðskona í handknattleik sem leikur sinn 35. landsleik í kvöld þegar íslenska landsliðið mætir Svartfellingum í 3. umferð undankeppni Evrópumótsins á Ásvöllum klukkan 18.
- Miðasala á leikinn á stubb.is.
„Þetta er fjögurra stiga leikur fyrir okkur. Það er nauðsynlegt að ná í stig á heimavelli til þess að vera í baráttunni um EM sæti. Við mætum til leiks með það markmið að vinna. Annað kemur ekki til greina,“ sagði Katrín Tinna þegar handbolti.is hitti hana fyrir eina af æfingum landsliðsins.
Allt opið
„Svartfellingar eru ólíkir þeim leikmönnum sem maður er vanur að mæta hér heima. Þær eru stærri og þyngri en það bara gaman að eiga við þær. Við verðum að leika þétta og góða vörn til þess að fá auðveldari sóknir sem gera okkur kleift að keyra í bakið á þeim. Það er allt opið í þessu því Svartfellingar eru ekki með óvinnandi lið, þótt það sé gott,“ segir Katrín Tinna Jensdóttir landsliðskona.
Íslenska landsliðið tapaði tveimur fyrstu leikjum sínum í undankeppninni í október, gegn Færeyingum á heimavelli og við Portúgal ytra. Eftir leikinn í kvöld heldur íslenska landsliðið til Podgorica og mætir Svartfellingum öðru sinni á sunnudaginn.
Síðustu tveir leikir undankeppninnar verða gegn Færeyingum í Þórshöfn 8. apríl og við Portúgal á Ásvöllum 12. apríl.
Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja
A-landslið kvenna – fréttasíða.



