„Við getum bætt margt frá síðasta leik okkar við Svartfellinga sem er jákvætt. Möguleikarnir eru klárlega fyrir hendi og ljóst að það væri frábært ef okkur tækist að stríða þeim á heimavelli,“ segir Sandra Erlingsdóttir fyrirliði kvennalandsliðsins í handknattleik sem mætir landsliði Svartfjallalands á Ásvöllum klukkan 18 í dag í undankeppni Evrópumótsins.
- Miðasala á leikinn á stubb.is.
„Okkur sviður að hafa ekki fengið stig úr tveimur fyrstu leikjum undankeppninnar. Fyrir vikið er þeim mun mikilvægara að fá stig úr þeim heimaleikjum sem eftir eru,“ segir Sandra sem leikur sinn 46. landsleik í kvöld.
„Við verðum að leika betri varnarleik gegn Svartfellingum en við gerðum þegar við mættum þeim á HM. Þá tókst Svartfellingum að halda mjög góðu floti á boltanum og okkur tókst ekki að brjóta nógu mikið á þeim. Þetta atriði verðum við að laga. Eins verður seinna tempóið í hraðaupphlaupum okkar að vera betra,“ segir Sandra og bætir við.
„Við lítum ekki á Svartfellinga sem risalið sem við eigum ekki möguleika í. Við erum á leiðinni í tvo hörkuleiki, hér heima og síðan úti á sunnudaginn. Ég er mjög spennt fyrir heimaleiknum sem skiptir okkur miklu máli,“ segir Sandra Erlingsdóttir fyrirliði landsliðsins í handknattleik.
Íslenska landsliðið tapaði tveimur fyrstu leikjum sínum í undankeppninni í október, gegn Færeyingum á heimavelli og við Portúgal ytra. Eftir leikinn í kvöld heldur íslenska landsliðið til Podgorica og mætir Svartfellingum öðru sinni á sunnudaginn.
Síðustu tveir leikir undankeppninnar verða gegn Færeyingum í Þórshöfn 8. apríl og við Portúgal á Ásvöllum 12. apríl.
Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja
A-landslið kvenna – fréttasíða.


