- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Tímabilinu er lokið hjá Ölfu Brá

- Auglýsing -

Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, landsliðskona og leikmaður Fram, tekur ekki þátt í fleiri leikjum á keppnistímabilinu vegna meiðsla. Þetta staðfesti hún við handbolta.is í dag. Að læknisráði hefur henni verið gert að taka sér þriggja til fjögurra mánaða frí frá handknattleik vegna meiðsla. Um er að ræða útbungun í mjóhrygg sem getur leitt til brjóskloss ef hún tekur sér ekki hvíld. Meiðslin hafa hrjáð Ölfu Brá síðustu vikur.


„Þetta er högg en við þessu er ekkert að gera,“ sagði Alfa Brá sem er burðarás Fram-liðsins sem situr í fimmta sæti Olísdeildar þegar þrjár umferðir eru eftir óleiknar. Hún hefur skorað 88 mörk í 18 leikjum Fram í Olísdeildinni.

Alfa Brá tók síðast þátt í undanúrslitaleik Fram og Hauka en varð að draga sig út úr landsliðinu í gær eftir að hafa fengið niðurstöðu rannsóknar læknis.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -