Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna vann frækinn sigur á Svartfellingum, 28:27, í 3. umferð undankeppni Evrópumóts kvenna í Kuehne+Nagel-höllinni á Ásvöllum í kvöld. Þar með komst íslenska liðið inn á sporið á nýjan leik á leið sinni að lokakeppni Evrópumótsins sem fram fer í desember í fimm Evrópulöndum. Um leið var þetta fyrsta tap Svartfellinga í undankeppninni.
Kvennalandsliðið hefur aðeins einu sinni áður unnið landslið Svartfellinga. Sá sigur vannst á HM í Brasilíu laugardaginn 3. desember 2011, 22:21.
Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari myndaði leikinn á Ásvöllum í kvöld fyrir handbolta.is. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir hans frá viðureigninni.
-Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.
Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja
A-landslið kvenna – fréttasíða.

































