Jens Bragi Bergþórsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og er nú samningsbundinn út tímabilið 2027-2028. Jens, sem verður tvítugur í sumar, leikur stórt hlutverk hjá KA en liðið situr í 5. sæti Olísdeildar.
„Jens hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína á línunni undanfarin ár en Jens, sem er uppalinn hjá KA, lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir félagið aðeins 16 ára gamall veturinn 2022-2023. Hann hefur í kjölfarið leikið 81 meistaraflokksleik fyrir KA í deild og bikar auk þess að vera fastamaður í yngri landsliðum Íslands. Í vetur hefur Jens haldið áfram að bæta sig og hefur hann gert 73 mörk í 22 leikjum og er með skotnýtingu upp á 84% auk þess að fiska þrettán vítaköst,“ segir m.a. í tilkynningu KA.
Jens Bragi framlengir um tvö ár


