Framarar og FH-ingar hleyptu enn meiri spennu í toppbaráttu Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld. Framarar skelltu toppliði Vals í N1-höllinni á Hlíðarenda með átta marka mun, 35:27, og FH lagði Aftureldingu eftir æsilegan endasprett sigurmarks Jakobs Martins Ásgeirssonar úr hraðaupphlaupi á síðustu sekúndu, 30:29, í Kaplakrika. Jakob og félagar unnu boltann af Mosfellingum átta sekúndum fyrir leikslok í jafnri stöðu og létu gullið tækifæri á sigurmarki sér ekki úr greipum ganga.
FH er aðeins stigi á eftir
Valur heldur enn þá efsta sæti deildarinnar þegar tvær umferðir, að undanskildum einum leik, eru eftir. FH er aðeins stigi á eftir Val og Haukar tveimur stigum frá lærisveinum Ágústs Þórs Jóhannssonar í Val. Vegna taps Aftureldingar í kvöld getur KA lætt sér upp í fjórða sæti annað kvöld takist Akureyrarliðinu að leggja Stjörnuna í Hekluhöllinni í síðasta leik 20. umferðar.

Virtust heillum horfnir
Valsmenn virtust heillum horfnir gegn sprækum leikmönnum Fram. Þeir síðarnefndu kunnu vel við sig á leikvellinum þar sem þeir tóku á móti Íslandsbikarnum í vor. Fram var sex mörkum yfir í hálfleik og skoraði að vild gegn daufum varnarmönnum Vals.
Stórt skref hjá HK
HK steig stórt skref í átt að sæti í úrslitakeppninni með öruggum sigri á Selfossi í Kórnum, 38:31. HK situr sem stendur í 8. sæti, þremur stigum á undan Þór og Selfossi þegar liðin eiga aðeins möguleika á að fiska fjögur stig hvert upp úr pottinum áður en deildarkeppninni verður lokið.
Áfram hallar undan fæti
ÍBV lagði ÍR í einum mesta markaleik í efstu deild karla frá upphafi, 44:40, í Vestmannaeyjum. Varnarleikurinn var ekki í hávegum hafður í Vestmannaeyjum enda er sókn oft besta vörnin. ÍBV er sem stendur í fjórða sæti en staða ÍR-liðsins verður erfiðari með hverjum leiknum sem líður.
Staðan og næstu leikir í Olíusdeildum.
Valur – Fram 27:35 (10:16).
Mörk Vals: Arnór Snær Óskarsson 10/2, Bjarni í Selvindi 4, Gunnar Róbertsson 4/1, Daníel Montoro 2, Logi Finnsson 2, Allan Norðberg 1, Björgvin Páll Gústavsson 1, Þorgils Jón Svölu Baldursson 1, Andri Finnsson 1, Magnús Óli Magnússon 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 6, 18,8% – Jens Sigurðarson 3, 25%.
Mörk Fram: Ívar Logi Styrmisson 7/2, Dagur Fannar Möller 5, Dánjal Ragnarsson 4, Kjartan Þór Júlíusson 4, Rúnar Kárason 3, Arnar Snær Magnússon 3, Max Emil Stenlund 2, Daníel Stefán Reynisson 2, Arnþór Sævarsson 2, Erlendur Guðmundsson 1, Viktor Sigurðsson 1, Magnús Öder Einarsson 1.
Varin skot: Breki Hrafn Árnason 14/2, 34,1%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

FH – Afturelding 30:29 (13:15)
Mörk FH: Garðar Ingi Sindrason 6, Ómar Darri Sigurgeirsson 4, Símon Michael Guðjónsson 4/4, Gunnar Kári Bragason 4, Jón Bjarni Ólafsson 4, Einar Örn Sindrason 3, Jakob Martin Ásgeirsson 3, Leonharð Þorgeir Harðarson 1, Birgir Már Birgisson 1.
Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 7, 29,2% – Daníel Freyr Andrésson 3, 20%.
Mörk Aftureldingar: Ihor Kopyshynskyi 7/3, Kristján Ottó Hjálmsson 7, Árni Bragi Eyjólfsson 5, Oscar Sven Leithoff Lykke 4, Stefán Magni Hjartarson 2, Þorvaldur Tryggvason 1, Ævar Smári Gunnarsson 1, Ágúst Ingi Óskarsson 1, Harri Halldórsson 1.
Varin skot: Einar Baldvin Baldvinsson 9, 27,3% – Sigurjón Bragi Atlason 1/1, 25%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
ÍBV – ÍR 44:40 (22:17).
Mörk ÍBV: Andri Erlingsson 10, Hákon Daði Styrmisson 10/3, Elís Þór Aðalsteinsson 6, Kristófer Ísak Bárðarson 6, Daníel Þór Ingason 4, Sveinn José Rivera 3, Andri Magnússon 2, Anton Frans Sigurðsson 2, Haukur Leó Magnússon 1.
Varin skot: Morgan Goði Garner 8, 25,8% – Petar Jokanovic 6, 26,1%.
Mörk ÍR: Jökull Blöndal Björnsson 14/5, Bernard Kristján Owusu Darkoh 8, Elvar Otri Hjálmarsson 6, Sveinn Brynjar Agnarsson 5, Róbert Snær Örvarsson 3, Eyþór Ari Waage 3, Patrekur Smári Arnarsson 1.
Varin skot: Alexander Ásgrímsson 9/1, 24,3% – Ólafur Rafn Gíslason 7, 30,4%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
HK – Selfoss 38:31 (15:12).
Mörk HK: Ágúst Guðmundsson 8, Hjörtur Ingi Halldórsson 8, Haukur Ingi Hauksson 7, Andri Þór Helgason 6/1, Orfeus Andreou 4, Sigurður Jefferson Guarino 3, Brynjar Vignir Sigurjónsson 1, Örn Alexandersson 1.
Varin skot: Jovan Kukobat 10, 31,3% – Brynjar Vignir Sigurjónsson 7/1, 43,8%.
Mörk Selfoss: Hákon Garri Gestsson 10, Hannes Höskuldsson 8/4, Tryggvi Sigurberg Traustason 3/1, Valdimar Örn Ingvarsson 3, Sölvi Svavarsson 2, Elvar Elí Hallgrímsson 1, Árni Ísleifsson 1, Jason Dagur Þórisson 1, Guðjón Baldur Ómarsson 1.
Varin skot: Alexander Hrafnkelsson 8, 23,5% – Philipp Seidemann 4, 25%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Staðan og næstu leikir í Olíusdeildum.


