- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Barcelona fyrst til að vinna Evrópumeistarana

- Auglýsing -

Barcelona varð fyrst liða í kvöld til þess að vinna Evrópumeistara SC Magdeburg í riðlakeppni Meistaradeildar karla í handknattleik er liðin mættust í GETEC Arena í næstsíðustu umferð riðlakeppninnar. Lokatölur, 36:29, fyrir Viktor Gísla Hallgrímsson og liðsfélaga í spænska meistaraliðinu. Barcelona svaraði þar með fyrir tap á heimavelli í fyrri umferðinni.

Ein stigs forskot

Barcelona hefur þar með eins stigs forskot í efsta sæti B-riðils þegar ein umferð er eftir. Hún verður leikin á miðvikudagskvöld. Magdeburg er stigi á eftir. Bæði lið eru fyrir löngu örugg um sæti í átta liða úrslitum keppninnar.

Viktor Gísli tók þátt í leiknum í um 18 mínútur og varði tvö skot úr hornum. Emil Nielsen, félagi hans í markinu, náði sér heldur ekki á strik. Koma það ekki að sök.

Felix Claar var markahæstur hjá Magdeburg með sjö mörk. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fimm mörk og gaf sex stoðsendingar. Ómar Ingi Magnússon skoraði þrjú mörk. Elvar Örn Jónsson er enn þá á sjúkralista.

Hornamaðurinn Aleix Gomez Abello var markahæstur hjá Barcelona með sjö mörk. Slóvenarnir Blaz Janc og Domen Makuc skoruðu fimm mörk hvor auk þess að gefa samanlagt 11 stoðsendingar. Dika Mem lék með Barcelona á nýjan leik eftir fjarveru vegna meiðsla. Hann skoraði þrisvar.

Frederik Bjerre fagnar einu af 12 mörkum sínum í Szeged í kvöld. Ljósmynd/EPA

Janus markahæstur í tapi

Janus Daði Smárason skoraði sjö mörk og var markahæstur hjá Pick Szeged sem tapaði á heimavelli fyrir danska liðinu GOG, 37:34. Pick Szeged hefur ekki náð sér á flug í keppninni í vetur og er í sjötta sæti B-riðils en það nægir liðinu til þess að komast áfram í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar.

Frederik Bjerre fór á kostum hjá GOG og skoraði 12 mörk og Óli Mittún skoraði sjö mörk.

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmdu leikinn í Pick Arena.

Staðan í A-riðli:

Standings provided by Sofascore

Staðan í B-riðli:

Standings provided by Sofascore

Í leikjum B-riðils vann Nantes ungverska liðið One Veszprém á heimavelli, 33:31. Bjarki Már Elísson er enn þá á sjúkralista hjá One Veszprém og var ekki með í Frakklandi í kvöld.

Benedikt með á ný

Norska liðið Kolstad tapaði með tíu marka mun í heimsókn til Dinamo í Búkarest, 33:23.

Leikmenn Kolstad þakka fyrir leikinn eftir 10 marka tap í Búkarest í kvöld. Ljósmynd/EPA

Benedikt Gunnar Óskarsson lék með Kolstad á ný eftir fjarveru vegna meiðsla. Hann skoraði ekki en er skráður fyrir einni stoðsendingu. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði fjögur mörk fyrir Kolstad.

Sigurjón Guðmundsson varði Kolstad í um stundarfjórðung og varði þrjú skot.

Samantek úr leikjunum er að finna hér fyrir neðan:

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -