Ágúst Þór Jóhannsson og Maksim Akbachev hafa valið hóp leikmanna til æfinga á höfuðborgarsvæðinu 16. – 19. mars. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu en nánara skipulag kemur inn á Abler þegar nær dregur, segir í tilkynningu HSÍ. Æfingarnar eru liður í undirbúningi 20 ára landsliðsins fyrir Evrópumótið sem fram fer í Rúmeníu frá 8. til 19. júlí.
Dregið var á dögunum: Ísland dróst í riðil með Evrópumeisturunum í lokakeppni EM 20 ára
Æfingahópurinn er skipaður eftirtöldum leikmönnum:
Markmenn:
Alexander Ásgrímsson, ÍR.
Jens Sigurðarson, Val.
Sigurjón Bragi Atlason, Aftureldingu.
Aðrir leikmenn:
Andri Erlingsson, ÍBV.
Ágúst Guðmundsson, HK.
Bernard Kristján Owusu Darkoh, ÍR.
Bessi Teitsson, Gróttu.
Dagur Leó Fannarsson, Val.
Daníel Bæring Grétarsson, Aftureldingu.
Daníel Montoro, Val.
Elís Þór Aðalsteinsson, ÍBV.
Max Emil Stenslund, Fram.
Garðar Ingi Sindrason, FH.
Harri Halldórsson, Aftureldingu.
Ingvar Dagur Gunnarsson, FH.
Jens Bragi Bergþórsson, KA.
Jökull Blöndal Björnsson, ÍR.
Leó Halldórsson, Aftureldingu.
Stefán Magni Hjartarson, Aftureldingu.
- Tekið er fram í tilkynningu HSÍ að Baldur Fritz Bjarnason leikmaður ÍR og Dagur Árni Heimisson leikmaður Vals taka ekki þátt í æfingum að þessu sinni vegna meiðsla.



