- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Sautján marka sigur og fjórða sætið – Stjarnan hefur misst móðinn

- Auglýsing -

KA settist í fjórða sæti Olísdeildar karla eftir 17 marka sigur á heillum horfnum leikmönnum Stjörnunnar, 38:21, í síðasta leik 20. umferðar. Leikið var á heimavelli Stjörnunnar sem var níu mörkum undir þegar fyrri hálfleikur var að baki, 20:11.


KA-menn fóru upp fyrir ÍBV og Aftureldingu með sigrinum og stefna að óbreyttu á heimaleikjarétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Stjarnan er aftur á móti áfram í slæmum málum í 11. og næst neðsta sæti með 10 stig, þremur stigum fyrir ofan ÍR. Stjarnan sækir ÍR heim í næstsíðustu umferð Olísdeildar á mánudagskvöld.

Sama hvar litið var á leik liðanna í Hekluhöllinni í kvöld. KA-liðið var sterkara á öllum sviðum; vörn, sókn og markvörslu. Engu var líkara en Stjörnumenn hefðu algörlega misst móðinn og kastað handklæðinu inn í hringinn. Á sama tíma voru leikmenn KA staðráðnir í að hressa sig við eftir vonbrigðin í undanúrslitum bikarkeppninnar fyrir rúmri viku.

Olísdeild karla: Hvaða leikir eru eftir?

Stjarnan – KA 21:38 (11:20).

Mörk Stjörnunnar: Benedikt Marinó Herdísarson 7/5, Ísak Logi Einarsson 5, Atli Hrafn Bernburg 2, Jóel Bernburg 2, Jón Ásgeir Eyjólfsson 2, Daníel Karl Gunnarsson 1, Hans Jörgen Ólafsson 1, Patrekur Þór Guðmundsson Öfjörð 1.
Varin skot: Sigurður Dan Óskarsson 8, 27,6% – Adam Thorstensen 1, 6,7%.

Mörk KA: Einar Rafn Eiðsson 8/4, Giorgi Arvelodi Dikhaminjia 7, Dagur Gautason 7, Patrekur Stefánsson 4, Einar Birgir Stefánsson 4, Arnór Ísak Haddsson 2, Magnús Dagur Jónatansson 2, Jens Bragi Bergþórsson 2, Aron Daði Stefánsson 1, Ágúst Elí Björgvinsson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 13/2, 43,3% – Bruno Bernat 5, 55,6%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -