Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik karla tilkynnir í hádeginu á mánudaginn hverjir skipa landsliðshópinn sem mætir sænska landsliðinu í tveimur vináttuleikjum 19. og 21. mars. Fyrri viðureignin verður í N1-höllinni á Hlíðarenda og sú síðari í Kaplakrika.
Auk þess að tilkynna um hverjir skipa landsliðshópinn verður tilkynnt um landsleiki sem fram fara í maí og um leið greint frá vináttuleikjum í byrjun janúar á næsta ári, í undirbúningi karlalandsliðsins fyrir Evrópumótið í Þýskalandi.
Tveir landsliðmenn hafa verið fjarverandi síðustu vikur vegna meiðsla, Bjarki Már Elísson og Elvar Örn Jónsson. Ólíklegt er að þeir verði klárir í slaginn við Svía hér á landi 19. og 21. mars. Aðrir leikmenn EM-hópsins í janúar eru sem stendur á fullri ferð með liðum sínum.
Miðasala á leikina við Svíþjóð.



