Framarar í liði tvö skoruðu þrjú síðustu mörkin og tryggðu sér sigur á Fjölni, 32:31, í Grill 66-deild karla í handknattleik í gærkvöld. Leikið var í Fjölnishöllinni en um var að ræða aðra viðureign í 20. umferð deildarinnar. Kristófer Tómas Gíslason unglingalandsliðsmaður skoraði sigurmarkið þegar nærri mínúta var eftir af leiktímanum.
Fjölnir hafði lengst af undirtökin í leiknum og m.a. var liðið með þriggja marka forystu þegar fyrri hálfleikur var að baki, 18:15.
Fjölnir er í 5. sæti Grill 66-deildar með 21 stig eftir 20 leiki. Hörður er stigi á eftir og á auk þess leik til góða gegn Val 2 sem ráðgert er að fari fram í dag í N1-höllinni á Hlíðarenda.
Fram 2 er í níunda sæti með 14 stig.
Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.
Mörk Fjölnis: Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson 8, Þorleifur Rafn Aðalsteinsson 8, Victor Máni Matthíasson 6, Óli Fannar Pedersen 4, Viktor Berg Grétarsson 2, Alex Máni Oddnýjarson 1, Kristján Ingi Kjartansson 1, Ari Magnússon 1.
Varin skot: Bergur Bjartmarsson 12.
Mörk Fram 2: Max Emil Stenlund 8, Arnþór Sævarsson 7, Kristófer Tómas Gíslason 6, Daníel Stefán Reynisson 3, Tindur Ingólfsson 3, Theodór Sigurðsson 3, Alex Adam Gunnlaugsson 1, Garpur Druzin Gylfason 1.
Varin skot: Garpur Druzin Gylfason 8.



